Stjórn Stangaveiðifélags Selfoss hefur ákveðið að lækka verð á veiðileyfum í vorveiði á veiðisvæðum félagsins. Með þessari breytingu viljum við hvetja félagsmenn og aðra veiðimenn til að hefja veiðarnar snemma á komandi veiðitímabili og njóta fyrstu vorstundanna við ár og vötn. Ákvörðunin er jafnframt tekin til að koma til móts við veiðimenn vegna almennra hækkana í þjóðfélaginu og gera þátttöku í sportinu aðgengilegri fyrir sem flesta.

Við hlökkum til að sjá ykkur á bökkunum í vor og vonum að þessi verðlækkun styrki jákvætt og lifandi veiðisamfélag okkar.

Veiðileyfin er hægt að kaupa inni á leyfi.is

Category
Tags

Comments are closed