Inganga í félagið er háð samþykkis aðalfundar hverju sinni. Aðalfundur er haldinn ár hvert fyrir 1. mars. Skilyrði er að sá sem óskar eftir inngöngu í félagið sé með lögheimili í Sveitarfélaginu Árborg og orðinn 14 ára að aldri. Ef umsækjandi er yngri en 18 ára þarf að liggja fyrir samþykki forráðamans.

Nýir félagsmenn skulu greiða inntökugjald fyrsta árið og árgjald eftir það. Upphæð þess er ákveðin á aðalfundi og greiðast við inngöngu í félagið.

Inntökugjaldið er núna kr. 40.000-. Árgjaldið er kr. 10.000-.

Umsóknir sem berast nú, verða teknar fyrir á aðalfundi sem verður haldinn í byrjun árs 2026. Umsóknir verða að berast stjórn fyrir aðalfund. Ef umsóknum er skilað inn rafrænt á fundardegi er ekki öruggt að þær verði bornar upp til atkvæðagreiðslu á aðalfundi og ber félagið ekki ábyrgð ef slíkt gerist.

Eftir að umsókn er samþykkt af aðalfundi er greiðslukrafa send í heimabanka viðkomandi og þarf krafan að vera greidd fyrir úthlutun veiðileyfa. Sölukvöld og úthlutun veiðileyfa er fljótlega eftir aðalfund og eru þau auglýst sérstaklega. Hafi umsækjandi verið í félaginu áður, er stjórn heimilt að lækka upphæð gjaldsins. Skuldi félagsmaður meir en árs árgjald, fellur hann brott úr félaginu.

Úr lögum félagsins:

Inngöngu í félagið geta þeir einir fengið:

  1. sem áhuga hafa fyrir stangaveiði og stunda hana sjálfir, skilyrði er að þeir séu orðnir 14 ára, og eigi lögheimili í Sveitarfélaginu Árborg,
  2. sem vilja undirgangast að misnota ekki venjulegar og viðurkenndar veiðiaðferðir (t.d. með því að krækja fiskinn, eða gera tilraunir til þess),
  3. sem vilja lofa því að koma drengilega og vinsamlega fram við félagsmenn og viðskiptamenn félagsins,
  4. sem eru fúsir til að skrá alla veiði sína skýrt og skilmerkilega í veiðibækur,
  5. og sem vilja undirgangast lög og reglur félagsins að öðru leyti enda sé inntökubeiðnin samþykkt á aðalfundi.