Aðalfundur 2014
- Details
- Created: 08 January 2014
Aðalfundur Stangaveiðifélgas Selfoss verður haldinn föstudaginn 24. janúar í sal Karlakórs Selfoss við Eyraveg. Fundurinn hefst kl. 20:00. Sú nýbreytni var þetta árið að greiðsluseðlar fyrir árgjöldum voru sendir út nú í byrjun janúar. Þess má geta að eingöngu skuldlausir félagar hafa rétt til að sækja um veiðileyfi.
Samkvæmt venju þá verður aðalfundarboð sent bréflega út til félaga. Umsóknareyðublöð fyrir veiðileyfi í Hlíðarvatni og Volasvæðinu verða aðgengileg á netinu en verða ekki send sérstaklega út með aðalfundarboði. Veiðikort fyrir Ölfusá verða til sölu á sölukvöldum.
Veiðifréttir úr Ölfusá
- Details
- Created: 14 August 2013
Það er svolítið um liðið frá því síðast komu fréttir af veiði á vatnasvæðum SVFS. En hér eru nýjustu tölurnar.
Góðar fréttir úr Volanum
- Details
- Created: 12 August 2013
Við vorum að fá fréttir af veiði á Vatnasvæðum Vola. Núna í morgun kom einn 12 punda lax á land í Baugstaðaós og er veiðin þar búin að vera mjög góð bæði á laxi og sjóbirtingi.
Veiðidagur fjölskyldunnar í Ölfusá
- Details
- Created: 08 August 2013
Á sunnudaginn kemur, 11. ágúst, er veiðidagur fjölskyldunnar í Ölfusá. Veiði byrjar kl 7:00 og stendur til kl 22:00 með venjubundnum hléum. Mætið með fjölskylduna og rennið fyrir fisk.