Veiðisumarið byrjar með ágætum
- Details
- Created: 19 June 2014
Ágætis fréttir af veiði hafa borist frá Volasvæðinu og úr Hlíðarvatni og óhætt að segja að árið byrji með besta móti. Ölfusá mun verða opnuð stundvíslega kl. 07:00, þriðjudaginn 24. júní. Stutt er síðan sást til lax í ánni á miðsvæðinu og var hann sagður nokkuð vænn að sjá. Eins og áður verður reynt að koma með helstu veiðitölur a.m.k. einu sinni í viku.
Úthlutun veiðileyfa lokið
- Details
- Created: 10 March 2014
Úthlutun veiðileyfa á svæðum félagsins er lokið. Öll laus leyfi eru komin í sölu á söluvefnum www.leyfi.is.
Sölukvöld veiðileyfa - Úthlutun
- Details
- Created: 15 February 2014
Nú styttist í veiðisumarið og því rétt að byrja gera allt klárt. Eitt af því sem þarf að klára er að sækja veiðileyfin sín og greiða fyrir þau. Í næstu viku verða þrjú sölukvöld þar sem félagar geta nálgast úthlutuð veiðileyfi og valið sér 3ja daga kort í Ölfusá. Eins og áður þarf að greiða fyrir veiðileyfin við afhendingu þeirra.
Sölukvöldin verða þriðjudaginn 18. feb., miðvikudaginn 19. feb., og fimmtudaginn 20. feb. á veitingastaðnum Eldhúsið við Tryggvagötu (sama hús og Samkaup). Öll kvöldin verður viðvera frá kl. 19:00 – 21:00.
Athugið að veiðileyfin verða ekki afhent nema greitt hafi verið fyrir þau að fullu.
Ósótt leyfi verða seld á söluvefnum www.leyfi.is.
Síðasti skiladagur umsókna er í dag, 31. janúar.
- Details
- Created: 31 January 2014
Við viljum minna félagsmenn SVFS á að í dag, 31. janúar, er síðasti séns á að skila inn umsóknum um veiðileyfi á vatnasvæðum SVFS. Umsóknum er hægt að skila í tölvupósti á svfs(hjá)svfs.is eða til einhvers af stjórnarmönnum. Umsóknir sem berast eftir daginn í dag verða ekki teknar til greina.